Ferðavernd er rekin af Vinnuvernd ehf. Þjónustan er í umsjón Helga Guðbergssonar, læknis, sem annast hefur bólusetningar ferðamanna um árabil. Vinnuna annast hjúkrunarfræðingar Vinnuverndar ehf.

Vinnuvernd ehf. hefur heimild sóttvarnalæknis til almennra bólusetninga af uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

  1. Læknir ber ábyrgð á bólusetningum enda flokkast bóluefni sem lyf. Hjúkrunarfræðingar fyrirtækisins geta annast bólusetningar á ábyrgð læknis.
  2. Skrá skal bólusetningar í samræmi við ákvæði 9. gr. reglug. nr. 221/2001.
  3. Senda skal sóttvarnalækni tilkynningar um hver er bólusettur, með hvaða bóluefni og hvenær samkvæmt nánari ákvörðun sóttvarnarlæknis sbr. 10 gr. reglug. nr. 221/2001. Í undirbúningi er rafræn tilkynning í miðlægan gagnagrunn sóttvarnarlæknis um bólusetningar sem tekinn verður í notkun síðar á árinu. Tilkynna skal um aukaverkanir bólusetningar samkvæmt ákvörðun sóttvarnalæknis.
  4. Hafa skal samráð við miðstöð sóttvarna innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um fyrirkomulag bólusetninga.

Öll þessi skilyrði sem þegar hafa tekið gildi eru uppfyllt af Vinnuvernd ehf. Rafrænni tilkynningaskildu í miðlægan gagnagrunn sóttvarnalæknis verður sinnt og mun Vinnuvernd ehf. tengjast þeim grunni þegar hann verður tekinn í notkun af sóttvarnalækni.

Fyrirspurnir og upplýsingar sendist á ferdavernd@ferdavernd.is, tímapantanir í síma 535-7700