Ferðafólk þarf að undirbúa með ráðum til að forðast ýmsa kvilla svo sem matarsýkingar, flugnabit og háfjallaveiki og láta það hafa ávísun á viðeigandi lyf sem óskað er eftir, til dæmis lyf gegn malaríu og hæðarveiki.

Heilbrigði á ferðalögum
Við viljum öll vera frísk á ferðalögum og eftir ferðir. Til þess að það takist er nauðsynlegt að þekkja helstu áhættuþætti og láta bólusetja sig gegn sjúkdómum sem landlægir eru á ýmsum svæðum, einkum í þróunarlöndum. Sjúkdómar og veikindi fólks í öðrum löndum eru sjaldnast á dagskrá fjölmiðla nema þegar hungursneyð, náttúruhamfarir eða stríð geysa. Hinn daglegi veruleiki er þó að þjóðir þróunarlanda búa við lélegri vatnsveitur og fráveitur, geymslu og dreifingu matvæla er ábótavant og moskítóflugur og ýmsar aðrar smitferjur eru á hverju strái.

Grundvallaratriði áður en lagt er af stað

Hvernig forðast maður veikindi?

Fáðu nauðsynlegar bólusetningar eða viðeigandi lyf
Lömunarveiki, stífkrampi, barnaveiki, lifrarbólga A, lifrarbólga B, taugaveiki, mýgulusótt, japönsk heilabólga, heilahimnubólga, hundaæði, kólera, malaria ofl.

Hreint drykkjarvatn
Innsiglaðar flöskur eða soðið í 3-5 mínútur.

Matur
Ekki borða af götunni – ekki borða hrátt (þetta á líka við um grænmeti), ekki borða kaldan mat, ekki kaldar sósur, ekki klaka í drykki, ekki ís úr vél eða af götunni. Nýsoðin matur er öruggastur. Skrældu sjálf/ur ávexti. Ekki borða ávexti með hýðinu.

Verðu þig gegn skortdýrabitum
Hyldu húðina með klæðum í ljósakiptunum og eftir myrkur. Nota úða eða smyrsl á óvarða húð ss. Hendur og andlit. Ef úði þá best að úða í lófa og nudda svo á andlit til að forðast að fari í augu. Úði eða krem með DEET 30-50% veitir bestu vörnina. Taktu malaríutöflur þegar við á.

Varastu sólina
Húðin er viðkvæmari fyrir sólinni því ljósari sem hún er. Vertu aðeins í stuttan tíma í einu allavega fyrst um sinn og notaðu ávallt sólarvörn.

Vökvatap
Í miklum hita er hætta á að þú tapir bæði vökva og salti út með svita. Drekktu vel og auktu saltneyslu til að koma í veg fyrir vökvatap.

Hreinlæti
Við frumstæð skilyrði skal ávallt hafa hreinlæti í fyrirrúmi. Alltaf að þvo hendur áður en þú matast eða matreiðir.